Sakar Google um að hagræða niðurstöðum

Trump ákvað að „googla“ sjálfan sig og var ekki sáttur …
Trump ákvað að „googla“ sjálfan sig og var ekki sáttur með niðurstöðurnar. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti komst að því þegar hann „googlaði“ fréttir um sjálfan sig að Google hagræddi niðurstöðum leitarinnar þannig að aðeins kæmu upp slæmar fréttir frá falsfréttamiðlum. Um þetta tjáir hann sig á Twitter.

Trump segir falsmiðilinn CNN sérstaklega áberandi í leitarniðurstöðum Google, og að íhaldssamari og sanngjarnari miðlum sé haldið frá. Hann spyr sig jafnframt að því hvort þetta sé yfir höfuð löglegt, og segir 96% niðurstaðna þegar leitað er að „Trump News“ koma frá vinstrisinnuðum fréttamiðlum.

„Google og aðrir bæla niður raddir íhaldsmanna og fela góðar upplýsingar og fréttir. Þeir stjórna því sem við sjáum og sjáum ekki. Þetta er mjög alvarlegt ástand – á því verður tekið,“ skrifar Trump.

Google hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem tekið er fram að leitarniðurstöðum sé ekki raðað til þess koma á framfæri stjórnmálaáróðri, heldur sé markmiðið að notendur fái upp mest viðeigandi niðurstöðurnar hverju sinni.

Jafnframt segir í yfirlýsingu Google, sem Reuters greinir frá, að fyrirtækið geri hundruð breytinga á reikniriti sínu ár hvert til að tryggja sem besta upplifun notenda. „Við röðum niðurstöðum aldrei til þess að hafa áhrif á pólitíska tilfinningu.“

Google vísar ásökunum Trump á bug.
Google vísar ásökunum Trump á bug. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert