Mættur undir stýri 2 dögum eftir slysið

Fil­ipp­us prins, her­tog­inn af Ed­in­borg, var aftur farinn að keyra, …
Fil­ipp­us prins, her­tog­inn af Ed­in­borg, var aftur farinn að keyra, tveimur dögum eftir bílslys sem hann lenti í. AFP

Fil­ipp­us prins, her­tog­inn af Ed­in­borg og eig­inmaður Elísa­bet­ar Eng­lands­drottn­ing­ar, var mættur undir stýri á nýrri Land Rover Freelander bifreið aðeins tveimur dögum eftir að hann lenti í bílslysi skammt fyrir utan sveitasetur konungsfjölskyldunnar í Norfolk á Englandi.

Filippus, sem er 97 ára gamall, sakaði ekki í slysinu, en tvær konur sem voru í hinni bifreiðinni fengu minniháttar áverka.

Breskir miðlar birtu í dag myndir af Freelander bifreið sem prinsinn er sagður hafa keyrt, en hann var einnig í slíkri bifreið þegar slysið varð.

Vitni að atburðinum sagði að prinsinn hafi verið brugðið eftir slysið, en hann stóð sjálfur upp og spurði farþegar hinnar bifreiðarinnar hvort allt væri í lagi.

Lögregluyfirvöld í Norfolk hafa gefið út að slysið verði rannsakað eins og hvert annað umferðaslys og að prinsinn muni ekki fá neina sérmeðferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert