Flugstjóri fékk taugaáfall

Vélin brotlenti í Nepal í mars í fyrra. 51 lét …
Vélin brotlenti í Nepal í mars í fyrra. 51 lét lífið í slysinu. AFP

Flugstjóri farþegaþotu sem brotlenti í Nepal í mars í fyrra virðist hafa fengið taugaáfall að því er fram kemur í lokaskýrslu nefndar sem rannsakaði flugslysið. 

Vélin var að fljúga frá Dhaka í Bangladess með 71 farþega um borð. Eldur kviknaði í vélinni þegar hún kom inn til lendingar í Katmandú með þeim afleiðingum að 51 lét lífið. 

Fram kemur á vef BBC, að í fyrstu hefði verið talið að rekja mætti slysið til slæmra fjarskipta við flugturn. 

Rannsakendur segja nú að flugstjórinn hafi verið að bölsótast í samtölum við aðra í áhöfn vélarinnar. Þá hafi hann einnig verið að reykja í flugstjórnarklefanum. 

Rannsóknarnefnd flugslysa í Nepal segir í skýrslunni að flugstjórinn hafi fundið fyrir mikilli streitu og átt mjög erfitt andlega vegna þess að samstarfskona hans, sem var ekki um borð í vélinni, hefði efast um hæfni hans sem flugkennara.

Flugstjórinn, sem var 52 ára gamall, var leystur frá störfum árið 1993 þegar hann var hjá flugher Bangladess. Fram kemur í skýrslunni að ástæðan hafi verið sú að hann hafi þjáðst af þunglyndi. Hann var síðar metinn hæfur til að stýra farþegaþotum. Í nýlegum læknisskýrslum er hvergi minnst á nein einkenni hjá flugstjóranum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert