Tesla kaupir rafhlöðuframleiðanda

Tesla hefur ákveðið að kaupa rafhlöðuframleiðandann Maxwell. Mynd frá útibúi …
Tesla hefur ákveðið að kaupa rafhlöðuframleiðandann Maxwell. Mynd frá útibúi Tesla í Amsterdam. AFP

Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur fest kaup á öllu hlutafé í orkutæknifyrirtækinu Maxwell Technologies fyrir 218 milljónir Bandaríkjadala, en Maxwell framleiðir ýmsar gerðir rafhlaðna og segist búa yfir nýrri tækni sem geti nýst við gerð rafhlaðna.

Tilkynnt var um kaupin í dag og í yfirlýsingu frá Tesla segir að fyrirtækið sé alltaf að skoða kaup á fyrirtækjum sem geti verið skynsamleg fyrir reksturinn og styðji við það markmið fyrirtækisins að hraða orkuskiptum í samgöngum.

Tesla hefur verið leiðandi á sviði rafbílaframleiðslu, en samkeppnin í þeim geira fer ört harðnandi, enda hefðbundnir bílaframleiðslurisar byrjaðir að leggja æ meiri áherslu á þróun rafbíla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert