Viðvörunarljós sett í vélar Boeing

Viðvörunarljósið verður framvegis að finna í flugvélunum.
Viðvörunarljósið verður framvegis að finna í flugvélunum. AFP

Sett verður sérstakt viðvörunarljós í allar flugvélar Boeing af tegundinni 737 MAX-8 sem mun blikka ef bilun kemur upp í svokölluðu MCAS-kerfi vélanna sem er ætlað að hindra að flugvélar ofrísi á flugi.

AFP-fréttastofan hefur þetta eftir heimildarmanni sínum.

Hingað til hafa flugfélög getað valið um hvort þau hafi þennan búnað í vélum sínum.

Notkun viðvörunarljóssins er hluti af þeim breytingum sem fyrirtækið ætlar að kynna fyrir bandarískum stjórnvöldum og viðskiptavinum sínum á næstu dögum, að sögn heimildarmannsins.

Viðvörunarljósið var hvorki að finna í flugvél Lion Air sem brotlenti í Indónesíu né í flugvél Ethiopian Airlines. Alls fórust 346 manneskjur með vélunum tveimur.

Rann­sókn á flug­rit­um beggja flug­vélanna hef­ur leitt í ljós, að MCAS-kerfið hagaði sér með sam­bæri­leg­um hætti í báðum slys­unum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert