Da Vinci jafnvígur á báðar hendur

Rannsakendur við Uffizi-safnið í borginni Flórens hafa sannað að listmálarinn Leonardo Da Vinci hafi verið jafnvígur á báðar hendur.

Grunsemdir hafa lengi verið uppi um þetta en núna hefur þetta loksins verið staðfest eftir að rannsökuð var teikning þekkt undir nafninu Landslag (8P). Talið er að teikningin sé hans fyrsta verk, eða frá árinu 1473 þegar Da Vinci var 21 árs.

Á myndinni sést áin Arno sem rennur í gegnum Flórens og kastalinn Montelupo er í bakgrunninum. Tveir handskrifaðir textar eru einnig á myndinni, annar framan á henni skrifaður frá hægri til vinstri og hinn aftan á henni skrifaður frá vinstri til hægri.

Rannsóknir sýndu að báðir textarnir voru skrifaðir af Da Vinci sem „notaði vinstri höndina til að skrifa framan á myndina með „speglaskrift“ og hægri höndina til að skrifa á bakhliðina með hefðbundinni skrift,“ að því er kom fram í yfirlýsingu frá Uffizi.

„Leonardo fæddist örvhentur en hlaut „endurmenntun“ ungur að aldri varðandi notkun hægri handarinnar,“ sagði fræðimaðurinn Cecilia Frosinini.

Vegfarendur í Berlín virða fyrir sér veggmynd af Monu Lisu, …
Vegfarendur í Berlín virða fyrir sér veggmynd af Monu Lisu, en Da Vinci er þekktur fyrir samnefnt málverk. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert