Mannskæð árás á kirkju

Búrkína Fasó er landlukt ríki í vestanverðri Afríku.
Búrkína Fasó er landlukt ríki í vestanverðri Afríku. AFP

Að minnsta kosti fimm manns létust er árás var gerð á kirkju í Búrkína Fasó í Vestur-Afríku í gær. Prestur er meðal hinna látnu. Stjórnvöld segja að öfgahópur íslamista hafi staðið að baki árásinni.

Árásin var gerð í smábænum Silgadji í norðurhluta landsins. Þetta er sögð fyrsta árásin sem gerð er á kirkju í Búrkína Fasó sem er meðal fátækustu ríkja Afríku.

„Óþekktir, vopnaðir einstaklingar gerðu árás á kirkju mótmælenda í Silgadji og drápu fjögur sóknarbörn og prestinn. Að minnsta kosti tveggja er enn saknað,“ hefur AFP-fréttastofan eftir heimildarmanni sínum innan lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert