Ummælin „algjörlega óviðunandi“

Theresa May og Donald Trump.
Theresa May og Donald Trump. AFP

Theresa May, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, hefur gagnrýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta en forsetinn sagði fjórum þingkonum Demókrataflokksins „að fara heim“ í færslum sem hann birti á Twitter í gær.

Trump hefur verið sakaður um kynþáttaníð en talið er að þingkonurnar fjórar sem Trump á við í færslum sínum séu þær Al­ex­andria Ocasio-Cortez, Rashida Tlaib, Ay­anna Pressley og Ilhan Omar, en þrjár þær fyrst­nefndu fædd­ust all­ar í Banda­ríkj­un­um og sú síðast­nefnda flutt­ist þangað sem barn.

May sagði ummæli Trump „algjörlega óviðunandi“ en forsetinn sagði þingkonurnar upprunalega koma frá löndum þar sem stjórnvöld væru gjörspillt.

Leiðtogar Demókrataflokksins hafa fordæmt rasísk ummæli forsetans en repúblikanar hafa þagað þunnu hljóði.

Trump lét gagnrýni sem vind um eyru þjóta og hvatti þingkonurnar fjórar í morgun til þess að biðjast afsökunar.

Al­ex­andria Ocasio-Cortez, Rashida Tlaib, Ay­anna Pressley og Ilh­an Omar sökuðu allar forsetann um rasisma en fjöldi áhrifafólks innan Demókrataflokksins hefur stutt þær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert