Gömul paradís orðin að ruslahaug

Teymi Lavers hreinsar strendur Henderson.
Teymi Lavers hreinsar strendur Henderson. AFP

Fljótandi plastleifar þekja nú afskekkta Kyrrahafseyju sem var eitt sinn álitin mikil náttúruperla. Segja vísindamenn að fátt sé til ráða til að bjarga eyjunni á meðan mannfólkið heldur áfram að henda sama magni af rusli. 

Henderson-eyja er óbyggð hringlaga kóraleyja með sjávarlóni í miðju og er staðsett svo gott sem á miðri leið milli Nýja-Sjálands og Perú, um 5.500 kílómetrar af hafi umlykja eyjuna í hvora átt. 

Þrátt fyrir gríðarlega einangrun eyjarinnar gera hafstraumar það að verkum að þar er ein mesta samsöfnun plastúrgangs á jörðinni. 

Hreinsunaraðgerðir á ströndum Henderson.
Hreinsunaraðgerðir á ströndum Henderson. AFP

„Við fundum rusl frá um það bil öllum stöðum,“ segir Jennifer Lavers, ástralskur vísindamaður sem fór fyrir rannsóknarferð til eyjarinnar í síðasta mánuði. 

„Við fundum flöskur og ílát, ýmis veiðifæri sem komu frá, nefndu það bara - Þýskalandi, Kanada, Bandaríkjunum, Síle, Argentínu, Ekvador. Þetta voru raunveruleg skilaboð um að öll lönd beri ábyrgð á að vernda umhverfið, líka á svona afskekktum svæðum.“

Vistkerfi eyjarinnar er gríðarlega fjölbreytt og dýrmætt. Henderson var sökum einstaks umhverfis sett á Heimsminjaskrá UNESCO árið 1988, þar sem eyjunni var lýst sem ósnortinni paradís. 

En þremur áratugum síðar er Henderson-eyja orðin miðdepill þess sem kallað er „plasteyjan“ í Suður-Kyrrahafi. 

Lavers fór fyrir fyrstu rannsóknarferð sinni til eyjarinnar árið 2015. Á austurströnd hennar fundust þá um 700 plastleifar á hverjum fermetra, sem er ein mesta samsöfnun plasts í heimi. Lavers skipulagði hreinsunaraðgerðir fyrir ferð sína til eyjarinnar í síðasta mánuði og söfnuðust sex tonn af plastúrgangi á tveimur vikum. 

Teymi Lavers tókst þó ekki að koma plastúrganginum um borð í skip sitt og þurfti að skilja það eftir á eyjunni, hvaðan það verður síðar fjarlægt. 

Plastrusl á Henderson.
Plastrusl á Henderson. AFP

Lavers segir það afar niðurdrepandi að leggja svo mikla vinnu í að hreinsa eyjuna, til þess eins að sjá meira plast fljóta upp á strendurnar sem hún hafði rétt lokið við að hreinsa. Segir hún ferðina varpa ljósi á þá staðreynd að hreinsunaraðgerðir séu engin langtímalausn á vandamálinu.

„Það er nú þegar svo mikið af rusli í hafinu, við þurfum að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að meira af rusli fari í það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert