Saklaus í fangelsi í 35 ár

Cathy Woods sat í fangelsi í 35 ár. Engin önnur …
Cathy Woods sat í fangelsi í 35 ár. Engin önnur kona í Bandaríkjunum hefur setið jafn lengi bak við lás og slá fyrir glæp sem hún var ranglega sökuð um og dæmd fyrir. Mynd úr safni. AFP

Kona sem sat sak­laus í fang­elsi í Nevada í Banda­ríkj­un­um í 35 ár hef­ur fengið þrjár millj­ónir banda­ríkja­dala, sem nem­ur tæplega 374 milljónum ís­lenskra króna, í bæt­ur vegna fang­elsis­vist­ar­inn­ar. Lögmaður konunnar segir að hún muni fara fram á frekari bætur. 

Árið 1980 var Cathy Woods, sem er 68 ára í dag, ranglega dæmd fyrir að myrða Michelle Mitchell, 19 ára gamlan hjúkrunarfræðinema, að því er AP-fréttastofan greinir frá. Engin önnur kona hefur setið saklaus í fangelsi lengur en Woods, samkvæmt bandarískum gagnagrunni yfir þá sem hafa verið ranglega dæmdir í fangelsi. 

Mitchell hvarf eft­ir að bíll henn­ar hafði bilað ná­lægt há­skól­an­um í Nevada hinn 24. fe­brú­ar árið 1976. Lík henn­ar fannst síðar í bíl­skúr. Hún hafði verið bund­in á hönd­um og á líki henn­ar voru mörg stungusár.

Það var ekki fyrr en þrem­ur árum síðar að Woods var hand­tek­in, grunuð um morðið. Hún var þá sjúk­ling­ur á geðdeild á geðsjúkrahúsi í Louisiana og sagði hjúkr­un­ar­fólki að hún hefði myrt Mitchell. Söguna end­ur­tók hún við lög­regl­una og kviðdóm­ur komst að þeirri niður­stöðu árið 1980 að hún væri sú seka. Hæstirétt­ur Nevada var ekki á sama máli og sýknaði hana. Málið fór þá aft­ur til meðferðar í und­ir­rétti og var Woods sak­felld árið 1985. Hún fékk lífstíðarfang­els­is­dóm.

Dæmdur morðingi talinn sá seki

Árið 2010 báðu lög­menn henn­ar um að málið yrði tekið aft­ur til rann­sókn­ar og að DNA-sýni yrðu tek­in. Í ljós kom að á síga­rett­ustubbi sem fannst við hlið líks­ins var DNA úr karl­manni. Þetta sama erfðaefni fannst á vett­vangi tveggja annarra óleystra morða í Kali­forn­íu árið 1976. Það var þó ekki fyrr en í júlí árið 2014 sem sannað var að erfðaefnið væri úr Rodney Halbower, fanga sem afplán­ar fang­els­is­dóm í Or­egon. 

Yfirvöld telja að Halbower hafi nauðgað og myrt sex konur, þar á meðal Mitchell. Hann hefur aðeins verið sakfelldur fyrir tvö morð. 

Hyggst fara fram á frekari bætur

Gögn byggð á DNA-sýnunum hafa nú sýnt fram á sak­leysi Woods. Lögfræðingur Woods segir að hún muni áfram sækja frekari bætur vegna málsins. Hyggst hún bæði stefna borgaryfirvöldum í Reno og rannsóknarlögreglumönnum sem fóru með rannsókn málsins en hún sakar þá um að hafa þvingað sig til að játa. 

„Þrátt fyrir að engin upphæð sé nógu há til að bæta fyrir það tjón sem fröken Woods hefur orðið fyrir, þá mun þetta koma að einhverjum notum til að sjá fyrir umönnun hennar,“ segir Elizabeth Wang, lögmaður Woods. 

Frá því að Woods losnaði úr fangelsi fyrir fjórum árum hefur hún dvalið hjá ættingjum í nágrenni borgarinnar Anacortes í Washingtonríki. 

Wang segir að Woods hafi glímt við geðræn vandamál áratugum saman og hefði aldrei átt að vera yfirheyrð af lögreglu í tengslum við morðið á Mitchell. 

Frekari málaferli vegna málsins eru nú þegar hafin og hefur Woods farið í mál við Nevadaríki þar sem reynir á ný lög sem kveða á um að þeir sem eru ranglega dæmdir fái allt að 3,5 milljónir bandaríkjadala í borgaralegar miskabætur. Fyrirtaka í málinu fór fram fyrr í mánuðinum en dómur hefur ekki verið kveðinn upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert