„Af hverju ætti Trump að vilja hitta mig?“

„Af hverju ætti hann [Trump] að vilja hitta mig; táning og loftslagsaðgerðasinna, þegar hann trúir ekki á vísindin sem búa að baki?“ spyr Greta Thunberg, sem stödd er á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti ætl­ar að sitja fund um trúfrelsi í höfuðstöðvum Sam­einuðu þjóðanna á sama tíma og lofts­lags­ráðstefna stofn­un­ar­inn­ar fer þar fram, en hún hefst á morgun.

Thunberg kom til New York í lok ágúst og hefur vera hennar í borginni vakið mikla athygli. Ungmennin sem hafa gengið til liðs við hana og mótmælt aðgerðaleysi stjórnvalda í loftslagsmálum skipta hundruðum þúsunda.

Thunberg hefur átt fundi með ýmsum áhrifamönnum í bandarískum stjórnmálum, þar á meðal Barack Obama. Sitjandi forseti hefur lítinn áhuga á að hitta hana, sem hún segist vel skilja, og telur hún að fundur með Trump myndi litlu skila hvort sem er þar sem hann trúi ekki á loftslagsbreytingar og áhrif þeirra. 

Greta Thunberg ávarpaði fyrsta Ungmennaþing Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í …
Greta Thunberg ávarpaði fyrsta Ungmennaþing Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í höfuðstöðvum SÞ í New York í gær. AFP

„Auðvitað virðast sumir stjórnmálaleiðtogar ákveðnari en aðrir, en það er eins og enginn þeirra þori að láta til sín taka, segja sannleikann,“ segir Thunberg. 

Í gær ávarpaði hún fyrsta Ungmennaþing Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í höfuðstöðvum SÞ í New York. „Í gær tóku milljónir manna á allri jörðinni þátt í kröfugöngum og kröfðust raunverulegra aðgerða í loftslagsmálum. Þetta var aðallega ungt fólk og við höfum sýnt að við erum samstiga. Enginn getur stöðvað okkur,“ sagði Thunberg meðal annars í ávarpi við upphaf þingsins. 

Talið er að fjórar milljónir hafi krafist aðgerða stjórnvalda í …
Talið er að fjórar milljónir hafi krafist aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum í allsherjarverkfalli fyrir loftslagið sem haldið var á föstudag. AFP

Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ávarpaði þingið sömuleiðis. Um 700 ungmenni taka þátt í þinginu. Ísland á sinn fulltrúa, Esther Halldórsdóttur, sem var nýlega kjörin fyrsti ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. 

Með þinginu vilja Sameinuðu þjóðirnar varpa ljósi á mikilvægi baráttu ungs fólks um heim allan fyrir aðgerðum í loftslagsmálum. 

Guterres var fyrst og fremst í hlutverki áheyranda á þinginu. Hann hélt þó stutt ávarp þar sem sagði eitt helsta vandamál leiðtoga heimsins að þeir töluðu of mikið og hlustuðu of lítið.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir eitt helsta vandamál leiðtoga …
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir eitt helsta vandamál leiðtoga heimsins að þeir tali og mikið og hlusti of lítið. AFP
Með ungmennaþingi um loftslagsmál vilja Sameinuðu þjóðirnar varpa ljósi á …
Með ungmennaþingi um loftslagsmál vilja Sameinuðu þjóðirnar varpa ljósi á mikilvægi baráttu ungs fólks um heim allan fyrir aðgerðum í loftslagsmálum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert