Trump bað Zelenskí að rannsaka Biden

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti bað Volody­myr Zelenskí, forseta Úkraínu, að rannsaka Joe Biden og son hans í símtali forsetanna í júlí. Hvíta húsið hefur birt endurrit af símtalinu þar sem beiðni Trumps kemur skýrt fram. 

Í símtalinu biður Trump Zelenskí að starfa með Willam Barr, þáverandi dómsmálaráðherra, og Rudy Giuliani, einkalögmanni Trumps, í þeim tilgangi að rannsaka Joe Biden, sem þykir líklegur til að standa uppi sem sigurvegari í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. 

 „Það er mikið rætt um son Biden og að [JoeBiden hafi komið í veg fyrir lögsókn gegn honum og margir vilja komast að því hvað gerðist þannig ef þú gætir kíkt á allt tengt ríkissaksóknaranum væri það frábært,“ segir Trump meðal annars í símtalinu. Hann heldur því fram að árið 2016 hafi Joe Biden komið í veg fyrir rannsókn sem sneri að Burisma, gasfyrirtæki í Úkraínu sem sonur hans, Hunter Biden, gegndi stjórnunarstöðu hjá.

Ríkissaksóknarinn sem um ræðir er Viktor Shokin, en honum var vikið úr embætti í mars 2016 með stuðningi mikils meirihluta Úkraínuþings. Samkvæmt símtalinu telur Trump að Biden hafi beitt því fyrir sig að Shokin hafi verið vikið úr embætti. 

Greint var frá því í gær að demó­krat­ar á Banda­ríkjaþingi hafi til­kynnt að haf­in verði form­leg rann­sókn á því hvort ákæra skuli Trump til emb­ætt­ismissis vegna brota í starfi, vegna frétta af að hann hafi þrýst á Zelenskí að hefja rann­sókn á Biden.

„Mestu nornaveiðar í sögu Bandaríkjanna“

Trump hef­ur viður­kennt að hafa rætt Biden í símatali sínu við Zelenskí 25. júlí, en neit­ar að hafa hótað að draga hernaðaraðstoð Banda­ríkj­anna til baka ef hann hafnaði beiðninni. New York Times greindi frá því í gær að 391 milljón dollara hernaðaraðstoð til Úkraínu hefði verið fryst nokkrum dögum áður en forsetarnir ræddu saman símleiðis. 

Trump segir að þrátt fyrir það sem fram komi í endurriti símtalsins hafi hann með engum hætti beitt Zelenskí þrýstingi. „Þetta var vinsamleg ábending, enginn þrýstingur,“ sagði Trump við fjölmiðlamenn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem allsherjarþing SÞ fer fram þessa dagana. 

Trump bætti við að ásakanirnar á hendur sér í þessu máli væru „mestu nornaveiðar í sögu Bandaríkjanna“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert