Dregur úr vægi Parísarsamkomulagsins

Reykur stígur upp frá kolakynntu orkuveri í Utah í Bandaríkjunum. …
Reykur stígur upp frá kolakynntu orkuveri í Utah í Bandaríkjunum. Meðal þeirra aðgerða sem Trump hefur gripið til í því skyni að vinda ofan af Parísarsamkomulaginu er að leyfa ríkjum Bandaríkjanna að setja eigin staðla um kolabrennslu orkuvera. AFP

Rússnesk og kínversk stjórnvöld eru í hópi þeirra ríkja sem harma þá ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta að segja Bandaríkin frá Parísarsamkomulaginu. Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna tilkynnti Sam­einuðu þjóðunum formlega í gærkvöldi um úr­sögn sína, en um eins árs ferli er að ræða og tekur úrsögnin gildi daginn eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári.

Emmanuel Macron Frakklandsforseti sem reyndi án árangurs að telja Trump á að hætta við þessa fyrirætlun sína sagðist einnig harma ákvörðunina. „Við hörmum þetta og þetta gerir samstarf Frakklands og Kína um loftslagsmál og líffræðilegan fjölbreytileika jafnvel enn nauðsynlegra,“ sagði Macron. Hann er nú í opinberri heimsókn í Kína, en ekkert ríki losar í dag meira af gróðurhúsaloftegundum.

Kínversk stjórnvöld kváðust einnig harma ákvörðunina. „Við vonum að Bandaríkin muni taka aukna ábyrgð og gera meira til að auka þetta fjölþjóða samstarfsferli í stað þessa að auka á neikvæða orku,“ sagði  Geng Shuang  talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins.

Emmanuel Macron Frakkklandsforseti og forsetafrúin Brigitte Macron og Xi Jinping …
Emmanuel Macron Frakkklandsforseti og forsetafrúin Brigitte Macron og Xi Jinping Kínaforseti og forsetafrúin Peng Liyuan í opinberri heimsókn þeirra fyrrnefndu til Kína. AFP

Erfitt að ræða um nokkurs konar loftslagssáttmála

Rússnesk stjórnvöld vara þá við að verulega dragi úr vægi Parísarsamkomulagsins með úrsögn Bandaríkjanna. „Án þátttöku stærsta efnahagsveldis heims þá er mjög, mjög erfitt að ræða um nokkurs konar loftslagssáttmála,“ sagði Dmitry Peskov talsmaður rússnesku stjórnarinnar.

Sam­komu­lagið skuld­bindur 188 ríki til þess að vinna sam­an gegn lofts­lags­breyt­ing­um. Full­trú­ar 187 ríkja auk Banda­ríkj­anna und­ir­rituðu sam­komu­lag í Par­ís árið 2015 um að halda hlýn­un jarðar af manna­völd­um inn­an 2°C marks­ins og jafn­vel und­ir 1,5°C. 

Don­ald Trump gerði hins vegar úr­sögn Banda­ríkj­anna úr sam­komu­lag­inu eitt af kosn­inga­mál­um sín­um. Eftir að hann tilkynnti fyrst um þessa fyrirætlun sína sögðust ýmis ríki og borgir Bandaríkjanna að þau myndu grípa til eigin aðgerða til að draga úr losun. Kalifornía hefur þar verið framarlega í flokki og hefur Trump reynt að koma í veg fyrir að ríkið nái að herða staðla um losun frá bílum. Þá hefur hann einnig leyft ríkjum Bandaríkjanna að setja eigin staðla um kolabrennslu orkuvera.

Donald Trump Bandaríkjaforseti á fundi með stuðningsmönnum í Kentucky í …
Donald Trump Bandaríkjaforseti á fundi með stuðningsmönnum í Kentucky í gær. AFP

Þvert á svartsýnustu spár hefur sú ákvörðun Trumps að segja Bandaríkin frá Parísarsamkomulaginu hins vegar ekki haft þau dómínóáhrif sem spáð var og hafa ríki á borð við Brasilíu og Ástralíu þannig til að mynda ekki fylgt á hæla hans. Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu og skoðanabróðir Trump, hefur þó gert lítið úr umhverfisverndarsinnum en hefur til þessa ekki gengið svo langt að hóta úrsögn frá Parísarsamkomulaginu.

Trump hefur ítrekað  fordæmt þá sem berjast gegn loftslagsbreytingum og sagt þá forréttindasinna. Skoðanakönnun sem Washington Post gerði í síðasta mánuði bendir þó til að hann sæti vaxandi andstöðu varðandi loftslagsmálin í eigin flokki og eru nú um 60% repúblikana þeirrar skoðunar að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert