Trump vill að fólk biðji fyrir sér

Andstæðingar Trump fyrir framan bandaríska þinghúsið.
Andstæðingar Trump fyrir framan bandaríska þinghúsið. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist í sínu nýjasta tísti á Twitter ekkert hafa gert af sér. Í kvöld mun fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiða atkvæði um hvort hann verði ákærður fyrir embættisbrot.

„Getið þið trúað því að ég verði ákærður í dag af hinu róttæka vinstra liði, duglausu demókrötunum, og ég gerði ekkert rangt! Hræðilegt mál,“ tísti forsetinn.

Hann óskar þess jafnframt að enginn annar forseti lendi í samskonar máli í framtíðinni og biður fólk um að biðja fyrir sér.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert