Kirkjugestir skutu byssumann til bana

West Freeway Church of Christ í borginni White Settlement í …
West Freeway Church of Christ í borginni White Settlement í Texas þar sem skotárásin átti sér stað. AFP

Kirkjugestir í bandaríska ríkinu Texas skutu byssumann til bana sem hafði ráðist inn í kirkju, skotið eitt sóknarbarn til bana og sært annað.

Atvikið átti sér stað í White Settlement, úthverfi borgarinnar Fort Worth, í morgun og nefnist kirkjan West Freeway Church of Christ.

Lögreglustjórinn J.P. Bevering talar við blaðamenn.
Lögreglustjórinn J.P. Bevering talar við blaðamenn. AFP

„Nokkrir meðlimir kirkjunnar skutu til baka á hinn grunaða sem lést á staðnum,“ sagði lögreglustjórinn J.P. Bevering.

Hann hrósaði „hetjulegum viðbröðum kirkjugestanna“.

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar hvaða ástæða lá að baki árásinni.

„Bænastaðir eiga að vera heilagir og ég er þakklátur þeim meðlimum kirkjunnar sem brugðust skjótt við, skutu árásarmanninn og komu í veg fyrir að fleiri voru drepnir,“ sagði Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, í yfirlýsingu.

Móðir Melanie Davis var inni í kirkjunni þegar árásin átti …
Móðir Melanie Davis var inni í kirkjunni þegar árásin átti sér stað. Hér ræðir hún við fjölmiðla. AFP

Byssur eru notaðar í um 36 þúsund dauðsföllum á ári í Bandaríkjunum. Fjöldaskotárásum hefur fjölgað mjög í landinu undanfarin ár.

Árið 2017 skaut árásarmaður 26 til bana í kirkju í Sutherland Springs í Texas. Um ári síðar voru 11 skotnir til bana í mosku í Pittsburgh.

AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert