Sprenging í Stokkhólmi

Sænska lögreglan rannsakar málið.
Sænska lögreglan rannsakar málið. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Sprenging varð í íbúðarhúsnæði í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, skömmu eftir klukkan eitt í nótt. Samkvæmt sænskum miðlum særðist enginn en töluverðar skemmdir urðu á húsinu og bílum í grennd við það.

Ekki er vitað hvað olli sprengingunni sem varð í Östermalm-hverfinu í Stokkhólmi.

„Á þessum tímapunkti er ómögulegt að segja til um hvort sprengingin varð inni í húsinu eða fyrir utan það,“ sagði talsmaður sænsku lögreglunnar í samtali við Aftonbladet en málið er til rannsóknar.

Önnu sprenging varð í Uppsala, um 70 kílómetra norður af Stokkhólmi, um klukkan þrjú í nótt. Þar særðist heldur enginn en ekki er talið að tengsl séu á milli sprenginganna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert