Samþykkja sjálfstæða rannsókn á WHO

Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­unin (WHO).
Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­unin (WHO). AFP

Aðildarríki Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar (WHO) samþykktu í dag að hefja sjálfstæða rannsókn á viðbrögðum stofnunarinnar við kórónuveirufaraldrinum. Bandaríkin hafa harðlega gagnrýnt hvernig þessi stofnun Sameinuðu þjóðana hefur tekið á farsóttinni.

Ársþing WHO er í fyrsta skipti haldið á netinu og var COVID-19 helsta umræðuefni þingsins og var samþykkt að rannsaka viðbrögð heimsins varðandi veiruna og meðal annars aðgerðir WHO og á hvaða tíma gripið var til þeirra.

Ekkert aðildarríki (en þau eru 194 talsins) lagðist gegn ákvörðuninni sem var lögð fram af  Evrópusambandinu fyrir hönd rúmlega 100 ríkja, þar á meðal Ástralíu, Kína og Japan. Áður hafði framkvæmdastjóri WHO, Adhanom Ghebreyesus, sagt að sjálfstæð úttekt myndi sýna hvað heimurinn gæti lært af faraldrinum og veita leiðbeiningar um það sem gera þurfi. Úttektin yrði gerð eins fljótt og auðið er. 

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hótaði í gærkvöldi að draga Bandaríkin út úr WHO en hann sakar stofnunina um að vera kjölturakka Kína. Þessu hafa Kínverjar harðlega vísað á bug. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert