Vilja opna á flugferðir til Íslands

AFP

Ísland, auk 30 annarra Evrópuríkja, verður meðal þeirra áfangastaða sem þýska ríkisstjórnin er tilbúin að létta ferðahömlum af frá 15. júní ef staðan í kórónuveirufaraldrinum leyfir.

Greint er frá þessu á vef þýsku fréttaveitunnar DPA.

Þar segir að samkvæmt frumvarpi sem lagt verði fyrir þýsku stjórnina á morgun vilji stjórnvöld að ferðalög til og frá ríkjum Evrópusambandsins, auk Bretlands, verði leyfð.

Einnig kemur þar fram að ferðalögin eigi líka við um ríki í Schengen-samstarfinu en það eru Liechtenstein, Noregur, Sviss og Ísland.

Greint var frá því í gær að áhugi væri hjá Icelandair að hefja daglegt flug til lykilstaða sem fyrst eftir að landamæri Íslands verða opnuð 15. júní. Þar eru meðal annars nefndir áfangastaðirnir Kaup­manna­höfn, Ósló, Frankfurt og Berlín.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert