Trump-hjónin með COVID-19

Forsetahjónin við Hvíta húsið 11. september, hvorugt með grímu.
Forsetahjónin við Hvíta húsið 11. september, hvorugt með grímu. AFP

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur greinst smitaður af kórónuveirunni og einnig eiginkona hans, Melania Trump. Þau eru bæði komin í einangrun. Forsetinn er 74 ára gamall og því í áhættuhópi. Hann greindi frá smitinu á Twitter og segir þar: „Við munum komast í gegnum þetta saman.“

Trump-hjónin greindust í kjölfar þess að einn af nánustu ráðgjöfum hans greindist með COVID-19.

Hope Hicks, sem er 31 árs gömul, er sú nánasta úr ráðgjafahópi Trumps til að smitast af COVID-19 en hún var samferða Trump í flugvél forsetans á sjónvarpskappræðurnar í Cleveland í Ohio fyrr í vikunni. 

Læknir forsetahjónanna segir að þau séu bæði við góða heilsu og að Donald Trump muni halda áfram að sinna skyldum sínum frá Hvíta húsinu þar sem hann er nú í einangrun.

Forsetaembættið hefur aflýst fyrirhuguðu kosningaferðalagi Trumps til Flórída sem átti að hefjast í dag. Aðeins 32 dagar eru til kjördags.

AFP

Forsetaframbjóðandi demókrata, Joe Biden, er með meira fylgi en Trump í skoðanakönnunum en óvíst er hvaða áhrif veikindin hafa á áform Trumps hvað varðar forsetaframboðið.

Útlit er fyrir að hann þurfi að aflýsa einhverjum kosningaferðalögum sem eru á dagskrá hans um helgina og í næstu viku.

Í yfirlýsingu frá lækni Trumps, Sean Conley, segir að forsetinn og eiginkona hans séu bæði við góða heilsu og stefni á að halda sig heima í Hvíta húsinu þar til þau ná bata. Conley segist ekki eiga von á öðru en forsetinn geti sinnt embættisskyldum sínum þar til hann nær bata.

Donald Trump og Hope Hicks.
Donald Trump og Hope Hicks. AFP

Fréttirnar af smiti Trump-hjónanna komu fljótlega eftir að Trump greindi frá því að Hicks hefði smitast af kórónuveirunni. Hún var eins og áður sagði samferða þeim í forsetaþotunni til Cleveland og eins var hún með í för á kosningafundi í Minnesota á miðvikudag. Auk þess að vera saman um borð í þotunni sátu þau þröngt í þyrlu í vikunni.

Trump greindi frá því að Hicks væri smituð í viðtali við Fox News seint í gærkvöldi og að hann hefði farið í skimun. „Þið vitið að ég eyði miklum tíma með Hope og það gerir forsetafrúin einnig,“ sagði Trump í viðtalinu. 

Þar kom fram í máli Trumps að Bandaríkin væru komin yfir það versta í COVID-19-faraldrinum en hann hefur kostað yfir 200 þúsund Bandaríkjamenn lífið. Trump notast nánast aldrei við grímu og hefur sagt að hann fari reglulega í sýnatöku. 

Forsetinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að halda fjölmenna kosningafundi þar sem fáir stuðningsmenn nota grímu. Eins hefur hann sent þjóð sinni misvísandi skilaboð um grímunotkun. 

Hlutabréfavísitalan í Tókýó, Nikkei 225, lækkaði um 0,67% eftir að fréttist að Trump hefði greinst með COVID-19 en hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum voru lokaðir þegar Trump birti færsluna á Twitter undir morgun að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert