Trump lagður inn á spítala

Donald Trump forseti og eiginkona hans Melania.
Donald Trump forseti og eiginkona hans Melania. AFP

Trump Bandaríkjaforseti hefur verið lagður inn á spítala vegna kórónuveirunnar. Ekki er sólarhringur liðinn frá því að hann greindi frá því að hann og kona hans Melania væru smituð. Trump er sagður vera með væg einkenni kórónuveirunnar.

Hann var lagður inn á Walter Reed-hersjúkrahúsið í kvöld. Talsmenn Hvíta hússins segja að Trump sé enn með væg einkenni en fréttir af innlögn forsetans eru sagðar vekja upp spurningar um heilsu hans, eins og fram kemur í frétt USA Today

Trump var fluttur með þyrlu á Walter Reed-hersjúkrahúsið eins og sjá má á myndskeiði Sky News. Eins og sjá má er Trump þó nægilega hraustur til þess að labba óstuddur út í þyrluna. Hann ber þó grímu fyrir vitum sínum, eitthvað sem hann hefur ekki gert opinberlega áður.

Tístið þagnað

Trump hefur ekkert sagt frekar frá veikindum sínum á twittersíðu sinni, sem verður að teljast óvenjulegt þar sem hann er vanur að tísta oft og reglulega. Þegar þessi frétt er unnin er síðasta tíst hans tilkynning um að hann og kona hans Melania hafi smitast af veirunni.

Bara varúðarráðstöfun

Talsmenn forsetans segja að innlögn hans sé aðeins fyrirbyggjandi og vegna varúðarráðstafana. Forsetinn sé þreyttur en annars við ágæta heilsu.

Læknar forsetans tilkynntu það svo í kvöld að honum hefði verið gefin gerviefnablönduð sýklalyf til þess að vinna gegn einkennum veirunnar. Sú blanda sýklalyfja hefur þó ekki verið samþykkt af lyfjaeftirlitsstofnunum. 

Uppfært: 22:51

Trump Bandaríkjaforseti hefur nú tíst um líðan sína og þá stðareynd að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús. Hann þakkar öllum þeim sem sent hafa honum og Melaniu konu hans batakveðjur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert