Trump útskrifast af sjúkrahúsinu í kvöld

Trump á Walter Reed-sjúkrahúsinu í gær.
Trump á Walter Reed-sjúkrahúsinu í gær. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti nú fyrir stundu á twittersíðu sinni að hann yrði útskrifaður af Walter Reed-hersjúkrahúsinu kl. 18:30 að austurstrandartíma, eða um hálfellefuleytið að íslenskum tíma. 

Sagði Trump í tísti sínu að sér liði „virkilega vel“ og hvatti hann Bandaríkjamenn til þess að hræðast ekki kórónuveiruna eða láta hana stjórna lífi sínu. 

„Mér líður betur en fyrir 20 árum!“ sagði Trump að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert