Biden með 17 prósentustiga forskot á Trump

Joe Biden flytur ræðu í borginni Miramar í Flórída í …
Joe Biden flytur ræðu í borginni Miramar í Flórída í gær. AFP

Joe Biden, forsetaframbjóðandi demókrata, er kominn með sautján prósentustiga forskot á Donald Trump Bandaríkjaforseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun Opinium Research og The Guardian.

Um 57% þeirra sem eru líklegir til að kjósa ætla sér að greiða atkvæði með Biden en aðeins 40% segjast ætla að kjósa Trump.

Þetta sautján prósentustiga bil er enn stærra en í skoðanakönnun bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN fyrr í þessum mánuði þar sem Biden var með 57% fylgi á móti 41% hjá Trump. 

Þetta mikla forskot er næstum því jafnmikið og Ronald Reagan hafði þegar hann tryggði sér endurkjör sem forseti árið 1984, að sögn The Guardian

Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær.
Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær. AFP

Sagði eldri borgara skipta Trump engu máli 

Biden gagnrýndi það hvernig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekist á við kórónuveirufaraldurinn er hann ræddi við eldri borgara í ríkinu Flórída.

Í augum forsetans „skiptið þið engu máli, þið eru gleymanleg, þið eru eiginlega ekki neitt. Þannig lítur hann á eldri borgara. Þannig sér hann ykkur“, sagði Biden í miðstöð eldri borgara í suðurhluta Flórída, í borginni Pembroke Pines. Hann sakaði forsetann um að gera lítið úr hættunni sem eldri borgurum stafar af kórónuveirunni.

Ummælin komu degi eftir að Trump hóf kosningaherferð sína á nýjan leik eftir að hafa greinst með kórónuveiruna. Sagði hann kjósendum að hann hefði náð fullum kröftum, að því er BBC greindi frá.

Ríki á borð við Flórída og Ohio eru mikilvæg þegar kemur að því að safna atkvæðum fyrir forsetakosningarnar.

Trump sigraði naumlega í Flórída í kosningunum árið 2016 með dyggri aðstoð eldri kjósenda en miðað við síðustu skoðanakannanir hafa eldri kjósendur snúið baki við honum í auknum mæli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert