Fjórir sagðir látnir eftir bílaáras í Trier

Jeppabifreið var ekið á gangandi vegfarendur í Trier.
Jeppabifreið var ekið á gangandi vegfarendur í Trier. AFP

Fjórir eru sagðir látnir og fjöldi slasaður eftir að bíl var ekið á gangandi vegfarendur í borginni Trier í Þýskalandi. Samkvæmt fyrstu fregnum af atvikinu eru einnig 15 slasaðir.

Búið er að handtaka árásarmanninn sem sagður er 51 árs gamall íbúi úr Trier-Saarburg hverfi borgarinnar.

Talsmaður lögreglunnar sagði í yfirlýsingu á Twitter að nokkrir væru látnir en staðarmiðlar fullyrða að fjórir hafi látist. Barn er sagt á meðal hinna látnu. Þá kemur fram í yfirlýsingu frá Wolfram Liebe, borgarstjóra í Trier, að margir séu alvarlega slasaðir.

Vopnaðir lögreglumen og öryggisverðir eru nú á svæðinu þar sem árásin var gerð.

Að sögn sjónvarvotta ók árásarmaðurinn á jeppabifreið inn í verslunargötu þar sem hann jók hraðann í átt að mannþröng. Lögreglumönnum tókst að stöðva bifreiðina í nærliggjandi götu.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá lögreglu þegar hún hefur yfirbugað árásarmanninn. Er hann sagður í Spiegel bera nafnið Bernd W. 

Fréttin verður uppfærð 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert