„Nóttin var skelfileg“

Volodimír Zelenskí, for­seti Úkraínu, flytur ávarp eftir erfiða nótt.
Volodimír Zelenskí, for­seti Úkraínu, flytur ávarp eftir erfiða nótt. AFP

Volodimír Zelenskí, for­seti Úkraínu, sagði Rússa beina sprengjum að íbúabyggð í Úkraínu og að nýliðin nótt hafi verið erfið fyrir marga Úkraínumenn.

„Nóttin var skelfileg. Stöðug skothríð þar sem skotið var á íbúabyggð og innviði,“ sagði Zelenskí í ávarpi í morgun.

„Nú er svo komið að innrásarherinn telur allt í okkar landi ásættanlegt skotmark og þeir berjast gegn öllum. Þeir berjast gegn öllum lifandi hlutum,“ sagði Zelenskí og bætti við að Rússar beini sprengjum sínum að leikskólum, blokkum og jafnvel sjúkrabílum.

Enn fremur beini Rússar eldflaugum að heilu hverfunum þar sem aldrei hafi verið neitt sem tengdist úkraínska hernum.

„Aðstæður í mörgum borgum hafa ekki verið svona slæmar síðan í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði forsetinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert