Ísland og ESB
| mbl
| 10.11.2009
| 14:42
Fyrsti fundur ESB nefndar
Fyrsti fundur samninganefndar Íslands í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB verður haldinn á morgun kl. 14:00 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra er aðalsamningamaður Íslands og stýrir samninganefndinni. Í henni sitja, auk aðalsamningmanns, formenn tíu samningahópa og sjö aðrir nefndarmenn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





