Serbar leggja lokahönd á ESB-umsókn
Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, segir að með þessu hafi Serbar stigið sögulegt skref í átt að Evrópusambandsaðild.
Á laugardag ákvað ríkisstjórn Serbíu formlega að sækja um aðild að ESB. Þann sama dag urðu Serbar. Svartfjallaland og Makedónía hluti af Schengen-samstarfinu.
Fyrr í mánuðinum afléttu utanríkisráðherrar ESB ríkjanna banni við innflutningi á vörum frá Serbíu þar sem stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í málefnum ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu lýsti því yfir að Serbar væru að gera það sem þeir gætu til að finna meinta stríðsglæpamenn.
Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar nýtur Serbía stuðnings hluta ríkja ESB fyrir inngöngu. Bretar og Hollendingar eru heldur andvígir inngöngu Serba en Grikkir og Ítalir styðja umsókn Serba.






