Samfylkingin hunsaði fund Evrópunefndar Búnaðarþings

Sigurbjartur Pálsson stækka

Sigurbjartur Pálsson

Samfylkingin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa sína til fundar við Evrópunefnd Búnaðarþings sem hefur starfað síðustu tvo daga. Þetta kemur fram á vef Bændasamtaka Íslands.

Nefndin boðaði á sinn fund fjölda gesta og óskaði meðal annars eftir því við alla stjórnmálaflokkana sem sæti eiga á Alþingi að þeir sendu sína fulltrúa til að fjalla um Evrópusambandsumsóknina.

Við því brugðust Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, Vinstri græn og Hreyfingin. Fulltrúar Samfylkingarinnar létu hins vegar ekki sjá sig og að sögn Sigurbjarts Pálssonar formanns nefndarinnar bárust engin skilaboð frá flokknum.

„Aðstoðarmaður Evrópunefndarinnar var í sambandi við alla þessa flokka fyrir Búnaðarþing þannig að tíminn var nægur. Það var haft samband við fulltrúa Samfylkingarinnar eins og aðra og það stóð víst til að athuga málið en síðan hefur ekkert frá þeim heyrst, þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað“ segir Sigurbjartur.

Sigurbjartur segir að sér finnist þetta mikil vonbrigði. „Það eru auðvitað mikil vonbrigði að Samfylkingin, annar stjórnarflokkurinn og sá sem hefur aðild að Evrópusambandinu algjörlega á sinni stefnuskrá, skuli ekki sjá ástæðu til að hitta Búnaðarþingsfulltrúa og ræða þetta málefni. Mér finnst það óskaplega dapurlegt.“

Sigurbjartur segist ekki vita hvað eigi að lesa út úr þessu. „Ég vil kannski sem allra minnst gera það en ég held nú að Samfylkingunni sé það alveg eins ljóst og öðrum stjórnmálaflokkum að það stendur hérna yfir Búnaðarþing. Við höfum í gegnum árin mjög oft fengið fulltrúa til okkar frá Alþingi og stjórnmálaflokkunum til að ræða hin ýmsu mál við þingið og við höfum átt mjög góð samskipti við fólk úr öllum flokkum. Ég vil því kannski ekki ráða of mikið í þetta en ég hef þó ekki trú á því að þetta sé tilviljun eða gleymska.“

Spurður hvort að hann muni eftir því að fulltrúar stjórnmálaflokka hafi ekki svarað erindi Búnaðarþings af þessu tagi segir Sigurbjartur að hann reki ekki minni til þess. „Öll þau ár sem ég hef setið hérna og hef þurft að kalla til fólk frá Alþingi, eða í raun og veru bara hvaðan sem er, þá man ég ekki eftir því að það hafi gerst áður að fólk hafi hreinlega ekki mætt án þess þá að hafa samband og gera grein fyrir því.“

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is