CNBC: Augljóst að Ísland getur ekki borgað
Stjórnandi þáttarins Strictly Money á sjónvarpsstöðinni CNBC og þeir sem komu fram í þættinum í gær voru sammála um að Íslendingar geti ekki greitt Bretum og Hollendingum til baka á þeim afarkjörum sem þeim standa til boða. Krafan sé Bretum til skammar og ekki bara það heldur hafi bresk yfirvöld aldrei átt að tryggja innistæðurnar.
Ekki voru gestir þáttarins sammála um hvort Íslendingar myndu ganga inn í Evrópusambandið. Áhugi Íslendinga hafi minnkað hratt eftir að hafa verið mikill skömmu eftir hrunið. Þar skipti sjávarútvegsmál miklu.
Þrátt fyrir að stjórnvöld vilji ganga inn í ESB þá fari ekki saman hugur almennings og yfirvalda. Þjóðaratkvæðagreiðslan um síðustu helgi sýni það.
Dragana Ignjatovic hjá IHS Global Insight sagði í þættinum að ríkin þrjú hljóti að setjast aftur að samningaborðinu. Helsta spurningin sé hversu langan tíma það taki að ná samkomulagi. Hún segir að ekki sé spurning um að Íslendingar vilji greiða fyrir Icesave enda verði Ísland að gera það. Hins vegar skipti máli hvaða skilmálar fylgi.
Hún segist vera fullviss um að Íslendingar eigi eftir að ganga í Evrópusambandið. Hvenær sem það verður.






