Ekki leyst í tæknilegum viðræðum

Einar K. Guðfinnsson segir að taka verði upp nýtt landbúnaðarkerfi gangi Ísland í ESB. stækka

Einar K. Guðfinnsson segir að taka verði upp nýtt landbúnaðarkerfi gangi Ísland í ESB. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Álit Framkvæmdastjórnar ESB á aðildarumsókn Íslands var til umfjöllunar á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis í fyrradag að ósk Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Hann segir ljóst að aðild að ESB muni hafa gríðarleg áhrif á sjávarútveg og landbúnað hér á landi.

„Í landbúnaðinum er ljóst að það þarf hreinlega að taka upp nýtt landbúnaðarkerfi,“ segir Einar. „Okkar stuðningur við landbúnað er fyrst og fremst framleiðslutengdur, en í Evrópusambandinu er lagt blátt bann við því. Það er líka ljóst mál að umsýslukostnaður verður mun meiri.“

Einar segir það sama eiga við í sjávarútveginum. „Ég tel að núna blasi við eftir þessa yfirferð og svar framkvæmdastjórnar ESB að þetta mál verður ekki leyst í einhverjum tæknilegum viðræðum sérfræðinga Íslendinga við ESB. Þetta eru pólitísk úrlausnarefni,“ segir hann.

Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is