ESB styrkir verkefni Matís
Matís stjórnar báðum verkefnum, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu.
Í því felst að ESB lætur allt styrktarféð renna til Matís sem síðan greiðir innlendum og erlendum samstarfsaðilum sínum. Talsverður hluti verkefnanna verður unninn á starfsstöðvum Matís á landsbyggðinni, enda byggjast þau meðal annars á samstarfi Matís við fyrirtæki um allt land. Meistara- og doktorsnemendur munu starfa að verkefnunum.
„Evrópusambandið væntir þess að í EcoFishMan verkefninu verði þróuð ný aðferðafræði sem nýtist við breytingar og umbætur á fiskveiðistjórnunarkerfi sambandsins. Lögð er áhersla á samstarf við sjómenn, útgerð og vinnslu og að hagnýta upplýsingar úr rafrænum afladagbókum. Markmið verkefnisins er að stuðla að vistvænni, sjálfbærri og hagrænni stjórnun með sérstakri áherslu á rekjanleika og að lágmarka brottkast afla.
Að EcoFishMan verkefninu koma alls 13 stofnanir, fyrirtæki og háskólar í átta Evrópulöndum, þar á meðal Háskóli Íslands og háskólinn í Tromsö í Noregi. Gert er ráð fyrir að verkefnið kosti 3,7 milljónir evra á þremur árum og nemur styrkur ESB 3,0 milljónum evra.
Dr. Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðsstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri og dr. Sveinn Margeirsson, sviðsstjóri hjá Matís, verður með henni í vísindanefnd verkefnisins," segir í tilkynningu.
AMYLOMICS verkefnið mun hagnýta fjölbreytt lífríki jarðhitasvæða á Íslandi við að þróa hitaþolin ensím til notkunar í sterkju- og sykruiðnaði. Hita- og sýruþol eru nauðsynlegir eiginleikar í slíkum iðnaðarferlum en þá má finna í ensímum lífvera á hverasvæðum.
Meðal þátttakenda í AMYLOMICS er franska fyrirtækið Roquette Frères, sem er eitt hið stærsta í Evrópu í framleiðslu sterkju og afleiddra afurða, með ársveltu upp á um 7 milljarða evra. Roquette Frères fær ensím, sem þróuð verða í verkefninu, til prófunar og nýsköpunar í framleiðslu sinni.
Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, fagstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri. Tvö önnur íslensk fyrirtæki, taka beinan þátt í verkefninu, Roche Nimblegen og Prókazyme.
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, segir í fréttatilkynningu að verkefnin tvö og stuðningur ESB við þau séu góð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag og viðurkenning fyrir Matís:
„Rannsóknarstyrkir ESB eru afar eftirsóttir og mikil samkeppni er um þá. EcoFishMan hlaut 14 stig af 15 mögulegum í mati fagnefndar ESB, sem er frábær árangur og skilaði verkefninu í hús hjá Matís og samstarfsaðilum. Með þessu festum við okkur enn frekar í sessi í alþjóðlegu vísindasamstarfi og svo er auðvitað sérstakur fengur að því fyrir Íslendinga að fá nú verulega fjármuni inn í samfélagið erlendis frá á þessum samdráttar- og niðurskurðartímum,“ er haft eftir Sjöfn í fréttatilkynningu.






