Formaður LÍÚ: Ummæli slitin úr samhengi

Adolf Guðmundsson.
Adolf Guðmundsson. mbl.is/Árni Sæberg

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, hefur sent frá sér athugasemd þar sem fram kemur að ummæli hans um Evrópusambandið hafi verið slitin úr samhengi í fréttum RÚV fyrr í vikunni. Hann vill árétta að engin breyting hafi orðið á afstöðu LÍÚ til aðildar að Evrópusambandinu.

„Að gefnu tilefni vill undirritaður árétta að engin breyting hefur orðið á afstöðu LÍÚ til aðildar að Evrópusambandinu. Ummæli mín undir lok viðtals í síðdegisþætti á Rás 2 í sl. miðvikudag voru í fréttum RÚV síðar þann sama dag af einhverri ástæðu slitin úr samhengi við annað sem ég hafði sagt fyrr í þættinum.

LÍÚ hefur um árabil lýst þeirri afstöðu samtakanna að Ísland eigi ekki erindi inn í Evrópusambandið.  Ríkisstjórn Íslands sótti hins vegar um aðild að ESB þvert á vilja meirihluta þjóðarinnar. Ég lýsti því í viðtalinu að ég teldi óraunhæft að reikna með því að umsóknin yrði dregin til baka og átti þá við að ég sé engin merki þess að ríkisstjórnin geri það, sem þó væri auðvitað hið eina rétta í málinu. Í ljósi þess bæri okkur skylda til þess - eins og ávallt þegar hagsmunir Íslands eru í húfi  - að ná eins góðum samingum fyrir Íslands hönd og kostur væri.

Ég tel að það komi strax í ljós í aðildarviðræðunum, að það eru engin líkindi til þess að við náum viðunandi samningi fyrir Íslands hönd eins og ég lýsti í viðtalinu," segir í athugasemd Adolfs sem birt er á vef LÍÚ.

mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær