Tillögur um aukna neytendavernd

stækka

mbl.is

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögur til að auka neytendavernd og tiltrú almennings á fjármálaþjónustu, að því er fram kemur á vef Neytendastofu. Lúta tillögurnar að breytingum á löggjöf Evrópusambandsins sem miða að því að auka vernd innistæðueigenda og smárra fjárfesta.

Framkvæmdastjórnin hefur auk þess óskað eftir umsögnum og tillögum með hvaða hætti hún geti aukið vernd vátryggingataka, þ.m.t að koma á fót sérstökum tryggingasjóði fyrir vátryggingartaka í öllum aðildarríkjum EES.

Innistæðurverndin aukin í 100 þúsund evrur

Samkvæmt tillögum ESB er nú lagt til að innstæðueigendur munu fá við gjaldþrot viðskiptabanka eða sparisjóðs innstæður sínar greiddar út mun fyrr eða innan 7 daga, vernd innstæðueigenda er aukin um allt að 100 þúsund evrur og þeir eiga að fá betri upplýsingar um með hvaða hætti og undir hvaða kringumstæðum þeir njóta verndar.

Fyrir fjárfesta sem nota þjónustu á sviði fjárfestinga, þá leggur framkvæmdastjórnin til að þeir fái mun hraðar bætur ef fjárfestingarsjóður bregst fjárfestum sínum vegna svika, mistaka eða óstjórnar við fjárfestingar sjóðsins. Verða lágmarksbætur hækkaðar úr 20 þúsund evrum í 50 þúsund evrur.

Fjárfestar munu einnig fá betri upplýsingar um hvenær að tryggingasjóður bætir tjón og þeir fá betri vernd gegn misnotkun þegar að fjármunum er komið í vörslu þriðja aðila eins og gerðist í nýlega í s.n. Madoff-máli, að því er fram kemur á vef Neytendastofu.

Tillögur ESB eru að öllu leyti í samræmi við samþykktir G20 eða tuttugu stærstu iðnríkjanna í heimi sem ESB hefur skuldbundið sig til að framfylgja. Þessar tillögur hafa nú verið lagðar fram á Evrópuþinginu og á borð ráðherraráðs ESB til umfjöllunar og samþykktar.

Hér er hægt að lesa nánar um þetta mál á vef Neytendastofu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is