Össur ræðir Evrópumál í Tallin
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með eistneskum starfsbróður sínum, Urmas Paet, í Tallinn í Eistlandi. Ráðherrarnir ræddu Evrópumál, samskipti ríkjanna og öryggis- og varnarmál.
Utanríkisráðherra ræddi stöðuna í formlegum samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið og fór yfir helstu hagsmunamál Íslands. Hann reifaði mjög ítarlega sjónarmið Íslendinga í fiskveiðum og sjávarútvegi og lagði áherslu á stuðning Eista við þau. 1. janúar nk. bætist Eistland í hóp 16 ESB-ríkja sem tekið hafa upp evru, og ræddu ráðherrarnir hvaða lærdóma Ísland gæti dregið af því ferli og um samstarf smárra ríkja innan Evrópusambandsins, samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.
„Eistar hafa stutt vel við bakið á Íslendingum í kjölfar bankahrunsins, m.a. í ESB-umsóknarferlinu, minnugir viðurkenningar Íslendinga á sjálfstæði þeirra fyrir tæpum tveimur áratugum. Á næsta ári standa fyrir dyrum hátíðahöld i í tilefni þess að tuttugu ár verða frá því að Eistland endurheimti sjálfstæði sitt. Á meðal þess sem á dagskrá verður, er sérstakur Íslandsdagur, 21. ágúst 2011, og er vonast eftir góðri þátttöku íslenskra listamanna.
Að loknum fundi utanríkiráðherranna, hitti Össur þingmenn í vináttunefnd Íslands en Eistar telja Íslendinga meðal helstu vina- og samstarfsþjóða sinna. Þá átti utanríkisráðherra fund með formanni Evrópunefndar eistneska þingsins og aðstoðarbankastjóra eistneska seðlabankans þar sem ráðherra fór yfir stöðuna í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, ræddi samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda. Ráðherra heimsótti einnig höfuðstöðvar hátæknifyrirtækisins Skype sem eru í Tallinn," segir í tilkynningu.






