Erlent
| mbl
| 20.10.2010
| 12:53
Ósáttur við hægagang hjá ESB
Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, er ósáttur við það hvað aðildarumsóknarferli landsins að Evrópusambandsins gangi hægt. „Vonbrigði er of vægt til orða tekið," sagði Erdogan á sameiginlegum blaðamannafundi hans og forsætisráðherra Finnlands, Mari Kiviniemi í dag.
„Ekkert ESB-ríki hefur þurft að bíða við hurðina í svo mörg ár," sagði hann. Hann sakar ESB um að veita ríkjum sem er andsnúinn Tyrklandi, bæði viðskiptalega og stjórnmálalega, að.
Erdogan segir að Tyrkland geti verið brú á milli vesturs og íslamska hluta heimsins.
Einn helsti andstæðingur Tyrklands þegar kemur að aðild að ESB er Kýpur en ólíklegt má telja að ríkin tvö leysi deilur sínar á næstunni.
Finnland hefur lengi stutt aðildarumsókn Tyrklands að ESB og segir Kiviniemi að Tyrkir hafi lagt sitt af mörkum til þess að aðlaga sig að ESB.
Tveggja daga heimsókn Erdogan til Finnlands er sú fyrsta sem tyrkneskur forsætisráðherra fer í meira en þrjátíu ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






