Eistar undirbúa upptöku evru

Andrus Ansip forsætisráðherra Eistlands, en Eistar ganga í Myntbandalag Evrópu um næstu áramót stækka

Andrus Ansip forsætisráðherra Eistlands, en Eistar ganga í Myntbandalag Evrópu um næstu áramót Reuters

Forsætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, segir að undirbúningur að upptöku evru gangi vel en Eistar taka upp evru á næsta ári. Hann gerir lítið úr efasemdaröddum sem telja að upptaka evru geti þýtt stóraukna verðbólgu í Eistlandi.

„Undirbúningur er í fullum gangi. Við verðum reiðubúin til þess að ganga í Myntbandalagið. Við erum á áætlun," sagði Ansip á blaðamannafundi með forsætisráðherra Finnlands, Mari Kiviniemi í Helsinki í dag.

Ansip segir að það að verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili sé jafn mikil og raun ber vitni, eða 4,7%, sé hluti af eðlilegri leiðréttingu á verðhjöðnun áður. Eins hafi áhrif að útflutningur hafi aukist mjög hratt. „Þegar eftirspurn er mikil þá eykst verðbólga," segir hann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is