Veröld/Fólk
|
Tíska
| mbl
| 14.6.2008
| 15:58
Sala á strandklæðnaði fyrir múslimskar konur rýkur upp
Burkini er framleitt í Ástralíu og þykir einkar hentugt fyrir múslimskar konur sem vilja bæði strandlíf en líka hefðir.
Frá því að byrjað var að selja flíkina í Danmörku hafa selst um hundrað stykki og kostar hún nálægt 1.000 dönskum krónum eða um 16.400 íslenskar.
Markhópur burkini er múslimskar konur sem bæði vilja halda í siði og venjur en líka spóka sig á ströndinni og stunda íþróttir.
Aðal munurinn á burkini og öðrum íþróttafatnaði fyrir múslimskar konur er efnið sem er notað en það er teygjuefnið lycra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






