Blómahátíð í Hveragerði
Blómasýning verður haldin um helgina í Hveragerði. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem garðyrkju- og blómasýning er haldin með þátttöku allra fagfélaga í græna geiranum á Íslandi.
Hvergerðingar bjóða landsmönnum öllum til blómasýningar dagana 26.-28. júní. Verður þetta í fyrsta sinn á Íslandi sem haldin er garðyrkju- og blómasýning með þátttöku allra fagfélaga í græna geiranum á Íslandi. Slíkar hátíðir eru þó vel þekktar erlendis.
Ráðstefnan „Íslensk garðlist“ sem stendur yfir dag, markar upphaf hátíðarinnar. Ráðstefnan er haldin á Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum ofan við Hveragerði. Í kjölfar hennar hófst sýningin með setningarathöfn kl. 16
Allt sem tengist garðyrkju, umhverfismálum, íslenskri framleiðslu og handverki verður á sýningunni. Sýningar, markaðir og ýmsar keppnir verða allan sýningartímann. Lífleg markaðsstemning í sölutjöldum verður allsráðandi með skemmtilegum uppákomum.
Segir í tilkynningu að sýningin sé fjölskyldumiðuð þar sem lögð verður áhersla á að gera börnum hátt undir höfði. Leiktæki og uppákomur verða fyrir yngstu kynslóðina þannig að engum ætti að leiðast. Góð aðstaða til gistingar er í boði á tjaldsvæði og þar eru einnig allskyns uppákomur.
Stærstu viðburðirnir eru:
- Smágarðasamkeppni, þar sem sex verðlaunatillögur í samkeppni Félags íslenskra landslagsarkitekta og Hveragerðisbæjar eru framkvæmdar í miðbæ Hveragerðisbæjar.
- Slá á met í gerð lengstu blómaskreytingar á Íslandi. Gert á útisvæði jafnt og þétt yfir sýningardagana þannig að gestir og gangandi geta fylst með. Framkvæmdin er í höndum Félags íslenskra blómaskreytimeistara sem einnig skreyta aðalgötu bæjarins með óvenjulegum skreytingum sem enda í uppsettu, blómaskreyttu svefnherbergi, eldhúsi og stofu á Gleym-mér- eyju sýningarsvæðisins.
- Risa sölu- og sýningarsvæði en svæðið skiptist í útisvæði, markaðstjöld og innisvæði. Á útisvæðinu, sem staðsett er í skrúðgarðinum, mun fjöldi einstaklinga og fyrirtækja sýna og selja vörur sínar. Þar verður boðið upp á allt frá blómadropum og garðaáburði upp í sláttuvélar, gróðurhús og garðpalla.







