Meginskylda lögráðamanna að vernda eigur barna

stækka

Kristinn Ingvarsson

Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, hefur ritað grein á vefsíðu umboðsmanns, um lánveitingar til barna í framhaldi af fréttum um lánveitingar Glitnis til barna vegna kaupa á stofnfjárbréfum í Byr, þar sem hún minnir foreldra á að í forsjárskyldum foreldra, felist að fara með lögráð barna sinna.

Í því felist sú meginskylda lögráðamanna að varðveita eignir barna, sjá til þess að þær fái bestu mögulegu ávöxtun og gæta þess að blanda ekki eigin fjármunum saman við fjármuni barnanna. Hagsmunir barnsins skuli alltaf hafðir í huga og foreldri taki ákvörðun út frá þeim.

Þá minnir umboðsmaður á að valdi foreldri eða lögráðamaður barni fjárhagslegu tjóni beri honum að bæta það sama hvort um gáleysi eða ásetning er að ræða.

Einnig setur umboðsmaður ofan í við þá fjármálastofnanir sem hafa veitt lán til barna og minnir á að eðlilegt sé að gerðar séu þær kröfur kröfur til sérfræðinga slíkra stofnana að þeir þekki lögræðislög og vinni samkvæmt þeim.

Grein umboðsmanns barna er að finna hér 

Margrét María Sigurðardóttir

Margrét María Sigurðardóttir

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is