Réði bróður norsku krónprinsessunnar
Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit prinsessa. mbl.is
Norðmaðurinn Bjørn Richard Johansen, sem var um tíma framkvæmdastjóri hjá Glitni og ráðgjafi íslenskra stjórnvalda eftir bankahrunið sl. haust, stendur í stórræðum þessa dagana en hann er nú stjórnarformaður almannatengslafyrirtækisins First House.
Ein helsta frétt norskra fjölmiðla í dag er að Johansen hafi ráðið Per Høiby, bróður norsku krónprinsessunar Mette-Marit, sem framkvæmdastjóra. Ráðið hefur verið í ýmsar yfirmannsstöður hjá First House að undanförnu og hafa þær ráðningar vakið athygli.
Johansen var um tíma framkvæmdastjóri samskiptasviðs Glitnis. Þá fékk Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hann sl. haust til að aðstoða sig í samskiptum við erlenda fjölmiðla.
First House segir í tilkynningu að fyrirtækið muni taka að sér verkefni við krísustjórnun hjá fyrirtækjum sem lenda í áföllum af hverskonar tagi. Það verði í samvinnu við samskonar fyrirtæki á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.






