Robbie talar um endurkomu með Take That

Robbie Williams sést hér á tónleikum sem hann hélt í Berlín í síðasta mánuði. stækka

Robbie Williams sést hér á tónleikum sem hann hélt í Berlín í síðasta mánuði. Reuters

Popparinn Robbie Williams segir að hann muni koma aftur fram með sínum gömlu félögum í hljómsveitinni Take That í náinni framtíð. Þegar spjallþáttastjórnandinn Jonathan Ross spurði Williams út í þetta sagði hann: „Já, ég vona það.“

Williams var gestur í þætti Ross hjá BBC, sem var tekinn upp í vikunni. „Við höfum hist og gert eitt og annað. Ég get ekki gefið mikið upp,“ sagði hann um sína gömlu félaga í þættinum.

Söngvarinn hefur boðað endurkomu sína eftir þriggja ára hlé. Í þættinum útskýrði hann m.a. hvers vegna hann hafi ekki komið fram á sviði í lengri tíma.

„Ákvörðunin var tekin fyrir mig. Ég hef ávallt verið mjög taugóstyrkur,“ segir hann. 

„Maður skilur ekki hvað er að gerast í höfðinu á manni. Þetta er áfall, mjög ógnvekjandi. Ég endaði í meðferð á nýjan leik, og maður hugsaði: „Hvað ertu að gera sjálfum þér?“ Ég taldi því tímabært að brjótast út úr þessum vítahring,“ sagði hinn 35 ára gamli poppari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is