Innlent
| mbl
| 9.11.2009
| 11:45
Dufl sprengd í Skarðsfjöru
Menn frá Landhelgisgæslunni fóru í liðinni viku í Skarðsfjöru og sprengdu dufl sem þar hafði rekið á land. Annað dufl fannst þar einnig þannig að duflin urðu tvö sem sprengd voru, að því er segir á vef lögreglunnar á Hvolsvelli.
Duflin voru bæði með búnað sem veldur því að þau geta sprungið ef átt er við þau. Hvetur lögreglan á Hvolsvelli alla sem sjá dufl að tilkynna það til lögreglu sem kemur áfram beiðni til Landhelgisgæslunnar um að gera ráðstafanir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






