Engin viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri

mbl.is/Júlíus

Það sem af er degi hafa hins vegar engin viðskipti átt sér stað á millibankamarkaði með gjaldeyri og er gengi evru gagnvart krónu óbreytt frá föstudeginum. Á föstudag voru viðskiptin hins vegar lífleg en alls nam velta á millibankamarkaði 6 milljónum evra, jafngildi u.þ.b. 1,1 milljarði króna. Framan af degi voru evrur keyptar og lækkaði gengi krónu gagnvart evru um 1%. Var það framhald á þróun fimmtudagsins, þegar krónan lækkaði um 0,8% gagnvart evru.

„Undir lok föstudagsins voru hins vegar seldar evrur á markaði og endaði gengi evru óbreytt frá dagsbyrjun í 185,5 kr. Fram hefur komið í fjölmiðlum að þarna hafi Seðlabankinn verið á ferð. Var það þá í þriðja skipti það sem af er nóvember sem bankinn beitti inngripum á markaði til þess að styðja við gengi krónu. Eru inngripin í nóvember nú þegar orðin jafnmikil og í öllum októbermánuði og þrefalt meiri en var í september. Það sem af er degi hafa hins vegar engin viðskipti átt sér stað á millibankamarkaði með gjaldeyri og er gengi evru gagnvart krónu óbreytt frá föstudeginum," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Glitnis.

Grunnur markaður skýrir sveiflur á gengi krónunnar

Ýmsir hafa viljað setja þrýsting á krónu seinni hluta síðustu viku í samhengi við lækkun stýrivaxta á fimmtudagsmorgun. „Við teljum þó að þar sé skýringarinnar tæplega að leita, enda áhöld um hvort bankinn var í raun að slaka nokkuð á peningalegu aðhaldi. Meðan gjaldeyrismarkaður er jafn grunnur og nú er raunin þarf ekki ýkja mikið undirliggjandi flæði til að mynda þrýsting á gengi krónu til skamms tíma, til að mynda vegna umfangsmikilla innkaupa á innfluttum vörum eða greiðslu afborgana og/eða vaxta af erlendum lánum," að því er fram kemur í Morgunkorni.

Stefnubreyting í Seðlabankanum

Greining Glitnis telur orð Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, á morgunfundi Viðskiptaráðs á föstudag athyglisverð í ljósi inngripa Seðlabankans í síðustu viku. Már fjallaði þar meðal annars um réttmæti inngripa á gjaldeyrismarkaði og færði fyrir því rök að beiting gjaldeyrisforða gæti skipt sköpum við að varðveita fjármálastöðugleika við erfiðar aðstæður. Vísaði hann m.a. til reynslu ríkja á borð við Brasilíu, Kóreu og Ástralíu í þessu sambandi.

„Svo virðist sem koma Más í Seðlabankann hafi markað nokkra stefnubreytingu í þessum málum, því sérfræðingar bankans hafa á liðnum árum gjarnan haldið þeirri skoðun á lofti að inngrip á gjaldeyrismarkað séu gagnslítil," að því er segir í Morgunkorni.

Inngrip hafa ekki haft mikil áhrif á gjaldeyrisforða

Það sem af er ári hefur Seðlabankinn keypt tæplega 15 milljarða króna á gjaldeyrismarkaði, og varið til þess ríflega 80 milljónum evra.

„Gjaldeyrisforði bankans hækkaði raunar um ríflega 16 ma.kr. í októbermánuði samkvæmt nýlega birtum tölum á vef bankans. Kom sú aukning til af útborgun AGS á þeim hluta lánafyrirgreiðslu sjóðsins sem háð var fyrstu endurskoðun áætlunar hans og stjórnvalda. Nemur forðinn ú í heild 451 ma.kr. Á móti gjaldeyriseign bankans standa þó ýmsar skammtímaskuldbindingar, til að mynda innstæður á gjaldeyrisreikningum.

Nettó gjaldeyrisstaða bankans til skemmri tíma er því tæpir 224 ma.kr., og gefur hún réttari mynd af slagkrafti bankans í þeirri viðleitni sinni að halda aftur af óhóflegum sveiflum og myndun vítahrings í gengisþróun krónu. Ef miðað er við nettóstöðuna og umfang inngripa Seðlabankans það sem af er ári má álykta að inngrip bankans hafi ekki höggvið ýkja stór skörð í forða bankans, en þó er ljóst að því eru takmörk sett hversu lengi bankinn getur stundað slík kaup miðað við núverandi aðstæður á markaði," að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is