Breskur raðnauðgari handtekinn
Breska lögreglan hefur handtekið 52 ára gamlan mann sem er grunaður um 100 árásir á eldri borgara í suðausturhluta Lundúna. Maðurinn beitti fólkið kynferðislegu ofbeldi eða nauðgaði því.
Lögreglan segir að hana hafi lengi grunað að einn aðili stæði að baki árásunum, en hann hefur hefur verið kallaður „næturhrellirinn“.
Málin teygja anga sína aftur til tíunda áratugarins, en maðurinn er einnig grunaður um fjölmörg innbrot.
Maðurinn var handtekinn snemma í morgun, og segir lögreglan mikilvægt að hann hafi náðst.
Minstead-lögreglurannsóknin hófst seint á tíunda áratug síðustu aldar, en rannsóknin beindist alls að 108 brotum. Konur voru í langflestum tilvika brotaþolar, en maðurinn réðst einnig á 10 eldri karlmenn. Einum þeirra var nauðgað.
Lögreglan segir að árásarmaðurinn hafi nauðgað fjórum einstaklingum. Einn þeirra hlaut mjög alvarlega áverka og var í lífshættu um tíma.






