Innlent
| mbl
| 21.11.2009
| 18:30
Bílvelta í hálku í Langadal
Bíll valt í Langadalnum nú um sexleytið í kvöld. Lögreglan á Blönduósi var kölluð til, en í bílnum var ökumaður og tvö börn. Ekki urðu alvarleg slys á fólki en ökumaðurinn og annað barnið kvörtuðu yfir eymslum í hálsi.
Tildrög slyssins voru þau að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í hálku, en hún er nú mjög mikil á þessum slóðum og full þörf á að fara sér hægt. Fólkið var flutt til Akureyrar til frekari aðhlynningar á sjúkrahúsinu þar.
Þá kom lögreglan á Blönduósi að öðrum útafakstri rétt við Blönduós. Þar höfðu engin slys orðið á fólki en ástæðan var sú sama, fljúgandi hálka hafði sent bílinn út af.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






