Man.Utd í annað sæti eftir 3:0 sigur á Everton

Darren Fletcher fagnar glæsimarki sínu sem hann skoraði gegn Everton. stækka

Darren Fletcher fagnar glæsimarki sínu sem hann skoraði gegn Everton. Reuters

Manchester United komst upp í annað sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, er fimm stigum á eftir Chelsea, eftir öruggan 3:0 sigur á Everton á Old Trafford. Darren Fletcher skoraði fyrsta markið í fyrri hálfleik með frábæru skoti og þeir Michael Carrick og Antonio Valencia bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleik.

Bein lýsing

90. Leik lokið. 3:0 sigur Manchester United.

75. MARK!! Englandsmeistararnir eru komnir í 3:0. Ekvadorinn Antonio Valencia var að bæta við þriðja markinu. Hann fékk sendingu frá varamanninum Paul Scholes og skoraði með föstu skoti sem hafði viðkomu í Leighton Baines.

67. MARK!! Manchester United er komið í 2:0. Michael Carrick skoraði með hnitmiðuðu vinstri fótarskoti frá vítateigslínu eftir sendingu frá Giggs.

60. Fyrsta færi Everton. Tim Cahill komst í gott færi en Edwin van der Sar var vel vakandi og varði með góðu úthlaupi.

45. Steve Bennett hefur flautað til leikhlés á Old Trafford þar sem Englandmeistararnir hafa verðskuldaða forystu.

34. MARK!! Darren Fletcher er búinn að  koma United yfir með frábæru marki. Skotinn tók boltann á lofti rétt utan vítateigsins og smellti honum í stöng og inn. Frábært mark!!

Stundarfjórðungur er liðinn af leiknum og hafa heimamenn sótt nær látlaust en hafa ekki náð að skapa sér nein umtalsverð færi.

Man Utd: Van der Sar, Rafael Da Silva, Brown, Vidic, Evra, Valencia, Fletcher, Carrick, Giggs, Rooney, Owen. Varamenn: Kuszczak, Anderson, Scholes, Welbeck, Obertan, Gibson, De Laet.


Everton: Howard, Neill, Yobo, Distin, Baines, Gosling, Rodwell, Heitinga, Cahill, Fellaini, Saha. Varamenn: Nash, Hibbert, Jo, Yakubu, Coleman, Duffy, Baxter.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is