21 fórst með ferju í Indónesíu

Indónesísk ferja. stækka

Indónesísk ferja.

21 lést þegar ferja sökk undan ströndum Indónesíu í dag, en 232 var bjargað, að sögn AFP fréttastofunnar sem vitnar í þarlenda embættismenn. Ferjan var með um 250 farþega innanborðs þegar hún sökk.

Að sögn embættismanna var veðrið slæmt og mikill öldugangur þegar ferjan sökk. Lögregla segir, að ferjunni hafi hvolft eftir um 90 mínútna siglingu. Að minnsta kosti 15 börn voru um borð.

Ferjuslys eru tíð í Indónesíu en ferjur eru algeng samgöngutæki þar enda eru 17 þúsund eyjur í Indónesíu. Skipunum er illa haldið við og oft eru mun fleiri farþegar um borð en reglugerðir leyfa. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí


finnur.is