Innlent
| mbl
| 22.11.2009
| 23:35
Bjargað af þaki Snælandsskóla
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út til að bjarga litlum dreng af þaki Snælandsskóla um átta leytið í kvöld, en drengurinn hafði klifrað upp á þak skólans og ekki þorað aftur niður. Að sögn slökkviliðamanns á vakt varð drengnum ekki meint af, en dálítið skelkaður. Hann gat ekki sagt nákvæmlega til um aldur drengsins, en sagði um smápolla vera að ræða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






