Enn eitt tapið hjá Portsmouth

Ricardo Fuller tryggði Stoke sigur í dag. stækka

Ricardo Fuller tryggði Stoke sigur í dag. Reuters

Jamaíkumaðurinn Ricardo Fuller tryggði Stoke 1:0 sigur á Portsmouth en liðin áttust við á Britannia vellinum í Stoke í dag. Fuller skoraði sigurmarkið á 74. mínútu og var þetta hans fyrsta mark á tímabilinu. Portsmouth fékk gullið tækifæri til að komast yfir í fyrri hálfleik en Kevin-Prince Boateng lét Thomas Sörensen verja frá sér vítaspyrnu.

Hermann Hreiðarsson lék allan tímann fyrir Portsmouth og var þetta fyrsti leikur hans með suðurstrandarliðinu á tímabilinu. Eyjamaðurinn sterki stóð fyrir sínu en Portsmouth situr eitt og yfirgefið á botni deildarinnar með aðeins 7 stig en Stoke fór upp í 9. sæti með 19 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is