Slasaður maður fluttur með þyrlu

Slasaður karlmaður var í nótt fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild en maðurinn féll af nýbyggingu á sumarhúsasvæði við Efra Langholt í Hrunamannahreppi á þriðja tímanum í nótt.

Maðurinn lenti á steypustyrktarjárni og þurfti að klippa hann lausan. Lögregla og björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni. Þyrlan lenti með manninn í Reykjavík á fjórða tímanum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is