Stefnumót ungs fólks og stjórnmálamanna
Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn efna til stefnumóts ungs fólks og stjórnmálamanna í Gyllta sal Hótels Borgar á morgun, mánudag, klukkan 16-18. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Hreiðar Már Árnason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema halda stutt erindi á stefnumótinu. Menntamálaráðherra hyggst ávarpa fundinn og tekur þátt í umræðum að erindum loknum.
Á stefnumótinu gefst ungu fólki tækifæri til að koma skoðunum og málefnum sínum á framfæri við menntamálaráðherra og aðra stjórnmálamenn. Auk þess fá stjórnmálamenn tækifæri til að ræða málefni ungs fólks. Æskulýðsfélögum, Æskulýðsráði, ráðherrum, þingmönnum, öllu ungu fólki og öllum áhugasömum um málefni ungs fólks er boðið á stefnumótið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangnum.
Í fréttatilkynningunni segir ennfremur að niðurstöður erlendra rannsókna sýni að þegar efnahagsþrengingar gangi yfir sé aldurshópurinn 16-25 ára í hvað mestri hættu. „Ef ekkert er að gert til að tryggja þátttöku þessa aldurshóps í samfélaginu er hætta á að þessi kynslóð týnist í framtíðinni. Einnig er hætt við að langvarandi atvinnuleysi og geðræn vandamál fari vaxandi meðal þessa hóps. Í því ljósi er afar mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða og setji málefni ungs fólks í forgang svo að koma megi í veg fyrir alvarlegar afleiðingar.“






